Ímyndaðu þér að losa þig við tilfinningabaggann sem þú hefur rogast með allt of lengi, að anda léttar og halda ró þinni í hverskyns aðstæðum. Bætt líðan er rétt handan við hornið.
Ertu að drukkna í erfiðum tilfinningum? Sitja verkefnin endalaust á hakanum og þú kemur engu í verk?
Þá ertu á réttum stað!
Það eru til einfaldar leiðir til að brjótast útur þessu lífsmynstri og sleppa tökunum á gömlum tilfinningum sem sitja fastar og skapa vandræði.
Gamlar upplifanir og tilfinningar tengdar þeim geta setið í manni og haft neikvæð áhrif á líðan.
Einkenni eins og:
Svefnleysi
Pirringur og reiði
Magaónot
Kvíði og stress
Frestunarárátta
og svo má lengi telja...
...en það þarf ekki að vera þannig lengur.
Aðferðirnar sem ég beiti miðast að því að losa um tilfinningaspennu sem situr föst - þennan óþarfa rembing og óþreyju sem flestir upplifa einhverntímann á lífsleiðinni.
Ég trúi á heildræna nálgun til að skapa vellíðan og heilbrigði sem snýr að líkama, huga og sál. Aðferðir mínar eru hannaðar til að aðstoða þig við að losna við erfiðar tilfinningar, anda léttar og hjálpa þér að sjá lífið í öðru ljósi. Allt þetta stuðlar svo að hamingjusamari og heilbrigðari lífstíl.
Hafðu samband og hefjumst handa.
Hvort sem þú ert rétt að hefja þinn bata feril eða ert nú þegar komin/n af stað,
get ég hjálpað þér að setja stefnuna á bjartari framtíð. Eftir aðeins nokkur skipti þar sem þú losar um tilfinningalega spennu, munu léttleiki og jákvæðar breytingar gera vart við sig.
Aðferðir mínar eru mildar, róandi, áhrifaríkar og sniðnar að þínum þörfum.
Náðu meiri árangri í heilsurækt með því að fá hugann og undirvitund þína með þér í lið
Slepptu taki á erfiðum tilfinningum sem halda aftur af þér
Bættu sambönd þín, hvort sem það er við fjölskyldumeðlimi, vini eða almennt í samfélaginu
Sem móðir skil ég hvað uppeldi kostar mikla orku. Erfiðar tilfinningar foreldra geta hamlað getu þeirra til að skapa öruggt rými fyrir börn og tilfinningar þeirra.
Hvort sem það er að ná nýjum hæðum í íþróttum eða styrkja það sem þú ert núþegar að gera þá get ég auðveldað þér að ná næstu markmiðum.
Óæskileg viðhorf þín og annara geta haft áhrif á framvindu þess sem þú fæst við, allt frá því að hægja verulega á eða jafnvel reka allt í rogastans.
Velkomin!
Ég heiti Sunnefa Pálsdóttir, áhugasöm og framsækin fagmanneskja með góða menntun og ástríðu fyrir því að hjálpa öðrum að umbreyta lífi sínu til hins betra.
Með BSc í tölvunarfræði, BA í teiknimyndagerð og gagnvirkum miðlum og 10 ára reynslu innan heilbrigðisgeirans (hjá Nox Medical), hef ég öðlast einstaka blöndu af greiningarhæfileikum og skapandi lausnamiðaðri hugsun sem nýtist vel í starfi. Ég er vottaður meðferðaraðili í dáleiðslu, Emotion Code (tilfinningalosun) og öndunarþjálfun . Ég býð uppá hlýja og áhrifaríka meðferð sem stuðlar að vellíðan og persónuþroska.
Á minni vegferð hef ég viðað að mér fjölmörgum tólum til að leiðbeina þér í átt að heilbrigðara og betra lífi. Hvort sem þú vilt ná tökum á kvíða, losa þig við óöryggi eða bara njóta meiri innri friðar, þá er ég hér til að styðja þig með skilningi og hlýju.
Hefðu tímabil jákvæðra breytinga í lífi þínu í dag .
- Velferð þín og vellíðan skiptir máli.
⭐⭐⭐⭐⭐
"Sunnefa hefur bætt líf mitt til muna. Áður en ég byrjaði hjá henni var ég mjög kvíðin, mjög slæm af vefjagigt, átti erfitt með mataræði og lágt sjálfsálit almennt. Ég var með svakalega þunga tösku á bakinu fulla af tilfinningum, minningum og vanlíðan sem ég hreinlega gat ekki unnið úr. Hún hefur hjálpað mér að samþykkja sjálfa mig, efla sjálfstraustið, vinna úr og losa mig við erfiðar tilfinningar sem ég hef ekkert við að gera og voru jafnvel annarra manna tilfinningar. Einnig hefur hún hjálpað hundinum mínum og páfagauk. Mæli 100% með Sunnefu til að losna við óþarfa farangur sálarinnar."
Þórdís Lilja
⭐⭐⭐⭐⭐
"I had a session with Sunnefa for something that was bothering me. It was a beautiful session. It was an amazing exercise in self love, having compassion for myself and forgiving myself. I felt I was in the very best of hands with Sunnefa. She is very professional, skilled and compassionate."
Misty Powers
⭐⭐⭐⭐⭐
"Sunnefa er mín allra besta vinkona og hef ég þekkt hana frá unglingsaldri. Ég get því fullyrt af fullri hreinskilni og einlægni að hún hefur alla sína tíð verið með eindæmum fjölhæf, útsjónarsöm, vandvirk og hæfileikarík í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, og ekki síður þegar kemur að því að hjálpa fólki með líðan sína og heilsu (enda er það eitt af hennar helstu ástríðuefnum í dag). Hún er hugheil, ótrúlega næm, með gríðarlega sterkt innsæi og er stöðugt að þróa og efla sínar mögnuðu skyggnigáfur. Þess vegna er Sunnefa og verður ALLTAF fyrsta manneskjan sem ég leita til þegar ég lendi á vegg í mínum heilunarleiðangri. Hún hefur hingað til ALLTAF náð að hjálpa mér að brjótast í gegnum þær hindranir sem ég hef ekki náð að vinna mig í gegnum sjálf upp á eigin spýtur. Ég get því ekki annað en eindregið mælt með henni elsku Sunnefu minni, hún veit svo sannarlega hvað hún syngur."
Ragnhildur Gyða
Copyright © 2024 Sunnefa Palsdottir's Account. All rights reserved.
Privacy Policy | Terms of Service | Accessibility