lOSAÐU ÞIG VIÐ HAMLANDI TILFINNINGAR

Uppgötvaðu hvernig skal losa um tilfinningaspennu, lærðu öndunaræfingar til að sefa taugakerfið og breyttu viðhorfi þínu til að öðlast bætta andlega og líkamlega líðan.

Transform Your Beliefs

bREYTTU þINNI SÝN

Leystu upp ósýnilega krafta sem halda aftur af þér og hindra það að þú verðir besta og kraftmesta útgáfan af þér.

Umbreyttu huga þínum og venjum.

Uppgötvaðu hvernig innri friður og skýr hugi geta breytt upplifun þinni á lífinu, haldið þér við efnið og hjálpað þér að lifa lífinu eins þú átt skilið. Með því að breyta innri trú og venjum skapar þú jákvætt og sjálfseflandi viðhorf sem getur haft mikil og jákvæð áhrif á líf þitt.

Smelltu á hnappinn og spjöllum um markmið þín.

Losaðu um tilfinningaspennu

Slepptu takinu af gömlum tilfinningum og hjálpaðu líkamanum að ná jafnvægi á ný.

Hreinsaðu út sorg, kvíða ofl. með þessari umbreytandi tækni (Emotion Code).

Þessi einstaka aðferð er hönnuð til að hjálpa þér að bera kennsl á og losa út innibirgðar tilfinningar (trapped emotions) sem gætu verið að hafa neikvæð áhrif á þitt andlega og líkamlega heilbrigði. Ég get leiðbeint þér í gegnum ferli sem gerir þér kleift að sleppa takinu á þessum erfiðu tilfinningum og þarmeð upplifa losun og frelsi.

Bókaðu frítt viðtal til að komast að því hvernig ég get aðstoðað þig við að losa um þessar tilfinningar.

Öndunar Þjálfun

Lærðu mildar, öruggar og hagnýtar öndunaræfingar sem þú getur notað í amstri daglegs lífs.

Öðlastu skilning á því hvernig andardrátturinn virkar.

Leystu úr læðingi kraftinn sem fylgir meðvitaðri öndun. Æfingar sem eru byggðar á vísindalegum rannsóknum hjálpa þér að halda stjórn á skýran og afslappaðan hátt. 

Öndunarvinna stuðlar að auknum krafti, heilbrigði og gleði í daglegu lífi.

Byrjaðu strax í dag.

Hæ, Ég heiti Sunnefa!

Ég vinn með fólki sem vill breyta lífi sínu til batnaðar með því að efla huga sinn og hjarta. Með einstakri blöndu af greiningarhæfni og skapandi lausnum tökumst við á við innri "skrímsli" sem eru vel falin en hafa mikil áhrif á þig.

Sem viðurkenndur meðferðaraðili í dáleiðslu, öndun og Emotion Code ásamt fleiru, býð ég uppá áhrifaríka meðferð sem stuðlar að persónulegum þroska og vellíðan.

Hvort sem þú ert að leitast við að sigrast á kvíða, efla sjálfsmyndina eða öðlast innri ró, þá er ég hér til að styðja þig með skilningi og hlýju.

Hefjum þetta sjálfseflandi ferðalag saman í dag. Heilsa þín og hugur skipta máli.

Bókaðu símtal í dag og segðu mér hvernig ég get hjálpað þér.

Vangaveltur

Hvað eru innibirgðar eða fastar tilfinningar?

Emotion Code er ein aðferð sem ég beiti. Vísindin hafa sýnt að tilfinningar sem voru bældar niður eða ekki losaðar út þegar þær urðu til geta setið fastar og haft neikvæð áhrifa á andlega og líkamlega líðan. Með þessari aðferð get ég aðstoðað þig við að bera kennsl á þær, losa þær út og þar með finna fyrir létti.

Hvernig getur öndunarþjálfun aukið lífsgæði mín?

Markviss öndun getur hjálpað við að draga úr streitu, aukið orku og stuðlað að skýrari hugsun. Æfingarnar sem ég mæli með eru hannaðar með þrjú mismunandi markmið í huga. Til að örva taugakerfið (t.d. fyrir æfingu), koma jafnvægi á það, (t.d. um miðjan dag) eða sefa taugakerfið (t.d. fyrir svefninn). Einnig eru þær sniðnar að fólki sem hefur nóg fyrir stafni og því auðvelt að koma þeim að hvar og hvernær sem er.

Afhverju gæti verið hollt að endurskoða viðhorf mitt?

Ef manni finnst maður vera fastur í sama farinu getur oft verið hollt að horfa aðeins öðruvísi á hlutina. Takmarkandi viðhorf (e. Limiting Beliefs) geta haldið aftur af manni og hindrað þroska og árangur. Því má oft skapa jákvæðara viðhorf og meiri drifkraft með því að losa sig við þau sem ekki þjóna manni lengur.

Hentar þetta byrjendum?

Algjörlega, Ég vinn með fólki á öllum stigum vegferðar sinnar. Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin í sjálfsvinnu eða komin með einhverja reynslu þá er ég sannfærð um að aðferðirnar sem ég beiti getið aðstoðað þig við að ná árangri.

Hvernig byrja ég?

Smelltu á hnappinn hér að neðan og segðu mér aðeins frá þér. Þannig getum við skoðað möguleikana og hvað hentar þér á þinni vegferð til batnaðar. Í kjölfarið má svo finna tíma til að hefjast handa við að hjálpa þér efla þig og líða betur.

UMSAGNIR

Mæli 100% með!

⭐⭐⭐⭐⭐

"Sunnefa hefur bætt líf mitt til muna. Áður en ég byrjaði hjá henni var ég mjög kvíðin, mjög slæm af vefjagigt, átti erfitt með mataræði og lágt sjálfsálit almennt. Ég var með svakalega þunga tösku á bakinu fulla af tilfinningum, minningum og vanlíðan sem ég hreinlega gat ekki unnið úr. Hún hefur hjálpað mér að samþykkja sjálfa mig, efla sjálfstraustið, vinna úr og losa mig við erfiðar tilfinningar sem ég hef ekkert við að gera og voru jafnvel annarra manna tilfinningar. Einnig hefur hún hjálpað hundinum mínum og páfagauk. Mæli 100% með Sunnefu til að losna við óþarfa farangur sálarinnar."

Þórdís Lilja

Very Skilled and professional

⭐⭐⭐⭐⭐

"I had a session with Sunnefa for something that was bothering me. It was a beautiful session. It was an amazing exercise in self love, having compassion for myself and forgiving myself. I felt I was in the very best of hands with Sunnefa. She is very professional, skilled and compassionate."

Misty Powers


Alltaf náð að hjálpa

⭐⭐⭐⭐⭐

"Sunnefa er mín allra besta vinkona og hef ég þekkt hana frá unglingsaldri. Ég get því fullyrt af fullri hreinskilni og einlægni að hún hefur alla sína tíð verið með eindæmum fjölhæf, útsjónarsöm, vandvirk og hæfileikarík í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, og ekki síður þegar kemur að því að hjálpa fólki með líðan sína og heilsu (enda er það eitt af hennar helstu ástríðuefnum í dag). Hún er hugheil, ótrúlega næm, með gríðarlega sterkt innsæi og er stöðugt að þróa og efla sínar mögnuðu skyggnigáfur. Þess vegna er Sunnefa og verður ALLTAF fyrsta manneskjan sem ég leita til þegar ég lendi á vegg í mínum heilunarleiðangri. Hún hefur hingað til ALLTAF náð að hjálpa mér að brjótast í gegnum þær hindranir sem ég hef ekki náð að vinna mig í gegnum sjálf upp á eigin spýtur. Ég get því ekki annað en eindregið mælt með henni elsku Sunnefu minni, hún veit svo sannarlega hvað hún syngur."

Ragnhildur Gyða

kastaðu af þér gömlum hömlum

Hafðu samband í dag og leyfðu þér að hefja eitthvað nýtt

Copyright © 2024 Sunnefa Palsdottir's Account. All rights reserved.

Privacy Policy  |  Terms of Service   |  Accessibility